Samhliða sveitarstjórnarkosningum 16. maí 2026 verða í Múlaþingi kosnir fulltrúar í fjórar heimastjórnir, það er heimastjórn Borgarfjarðar, heimastjórn Djúpavogs, heimastjórn Fljótsdalshéraðs og heimastjórn Seyðisfjarðar.
Kjörgengir til heimastjórnar eru allir íbúar á kjörskrá í Múlaþingi, hver samkvæmt kjörskrá í sinni „heimasveit“, það er í hverju hinna eldri sveitarfélaga sem nú mynda Múlaþing. Hægt er að kynna sér hlutverk heimastjórna hér á heimasíðu Múlaþings.
Einstaklingum sem vilja gefa kost á sér til heimastjórna býðst að kynna sig og sín áherslumál á heimasíðu Múlaþings. Stofnaðar hafa verið sérstakar síður á mulathing.is þar sem upplýsingarnar verða birtar í stafrófsröð um þá einstaklinga sem þess óska og gefa kost á sér til setu í heimastjórn.
Frambjóðendum er boðið að senda mynd af sér og stuttan kynningartexta til sveitarfélagsins, að hámarki 200 orð. Í efninu þarf að koma fram nafn og heimilisfang frambjóðanda, sem eru þær upplýsingar sem kjósendur þurfa að skrá á kjörseðil í kosningunum sjálfum.
Múlaþing ber ekki ábyrgð á því efni sem einstaklingar senda. Vanti nafn frambjóðanda eða heimilisfang verður efnið ekki birt.