Fara í efni

Kynning á trérennismíði fyrir eldri borgara í Múlaþingi

25.08.2022 Fréttir Djúpivogur Egilsstaðir

Félag trérennismiða á Íslandi er um þessar mundir að hefja kynningarátak í trérennismíði um allt land og mun í samstarfi við Múlaþing og félög eldri borgara í sveitarfélaginu, halda tvær slíkar kynningar:

    1. september verður haldin kynning á Egilsstöðum á verkstæðinu á Vonarlandi kl. 9:00.
    1. september verður haldin kynning á Djúpavogi í Tryggvabúð kl. 13:00.

Örn Ragnarson, formaður Félags trérennismiða á Íslandi, heldur kynningu á félaginu og verður með sýnikennslu. Hann verður með járn og rennibekk meðferðis og mun verja tíma með áhugasömum.

Múlaþing hvetur konur jafnt sem karla til þess að nýta sér kynningu á skemmtilegu tómstundagamni.

Kynning á trérennismíði fyrir eldri borgara í Múlaþingi
Getum við bætt efni þessarar síðu?