Fara í efni

Kynningarfundur um tillögu að strandsvæðisskipulagi á Austfjörðum - Seyðisfirði

28.06.2022 Fréttir Seyðisfjörður

Fyrir liggur tillaga að Strandsvæðisskipulagi Austfjarða 2022 sem kynnt er samkvæmt 12. gr. laga um skipulag haf- og strandsvæða nr. 88/2018.

Í skipulagstillögunni er sett fram stefna um nýtingu svæðis sem nær yfir firði og flóa frá Almenningsfles í norðri að Hvítingum í suðri. Nú stendur Skipulagsstofnun fyrir kynningarfundum um skipulagstillöguna, og verður hún kynnt í tvígang á Austfjörðum. Annars vegar á Fáskrúðsfirði og hins vegar á Seyðisfirði.

Fundur á Seyðisfirði verður haldinn í menningar- og félagsheimilinu Herðubreið, 28 júní klukkan 16:30-18:00.

Tillagan verður kynnt ásamt því að farið verður yfir ferli þeirrar vinnu sem nú liggur að baki. Að því loknu mun þátttakendum gefast tækifæri til að leggja fram spurningar.

Dagskrá fundar:

  • Kynning tillögu að Strandsvæðisskipulagi á Austfjörðum.
  • Spurningar og umræður.

Öll sem hafa áhuga eru hvött til að koma og kynna sér tillöguna og taka þátt í umræðum.

Húsið opnar klukkan 16:15. Heitt verður á könnunni.

Tillagan ásamt frekari upplýsingum um kynningartíma og frest til að koma að athugasemdum. Nánari upplýsingar um ferlið má finna á hafskipulag.is

Kynningarfundur um tillögu að strandsvæðisskipulagi á Austfjörðum - Seyðisfirði
Getum við bætt efni þessarar síðu?