Fara í efni

Kynningarganga um varnargarða á Seyðisfirði

28.08.2023 Fréttir Seyðisfjörður

Boðið er til kynningargöngu um varnargarðana á Seyðisfirði miðvikudaginn 30. ágúst klukkan 18:00. Hist verður við áhaldahúsið á Seyðisfirði þar sem farið verður í gönguferð undir styrkri fararstjórn starfsmanna Héraðsverks og Múlaþings. Gengið verður frá áhaldahúsinu eftir vinnuveginum sem lagður hefur verið í gegnum vinnusvæðið og endað í vinnubúðum Héraðsverks, þar sem boðið verður uppá léttar veitingar.

Vonumst eftir að sjá sem flesta í útivistarfötum og góðum skóm.

Kynningarganga um varnargarða á Seyðisfirði
Getum við bætt efni þessarar síðu?