Föstudaginn 11. september var haldin árleg námstefna um Byrjendalæsi á vegum Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri. Í ár var námstefnan tileinkuð Rósu Eggertsdóttur sem var frumkvöðull og fræðimaður í þróun læsiskennslu og menntunar. Hún átti hugmyndina að Byrjendalæsi og með eldmóði og krafti vann hún því brautargengi í starfi sínu við HA.
Við fráfall Rósu stofnuðu Zontakonur á Akureyri minningarsjóð Rósu Eggertsdóttur og á föstudaginn voru veittar viðurkenningar úr sjóðnum í fyrsta sinn til framúrskarandi kennara. Ánægjulegt er að segja frá því að Drífa Magnúsdóttir, umsjónarkennari og leiðtogi Byrjendalæsis í Egilsstaðaskóla, var meðal þeirra sem fengu slíka viðurkenningu.
Í Egilsstaðaskóla hefur verið unnið eftir aðferðum Byrjendalæsis frá árinu 2014. Frá byrjun hefur Drífa Magnúsdóttir kennari verið leiðtogi við skólann. Drífa hefur sýnt framúrskarandi leiðtogafærni og verið óþreytandi við að styðja kennara við að ná tökum á aðferðum Byrjendalæsis og við að viðhalda þekkingu sinni og færni.
Í kennslu sinni hefur Drífa ávallt fylgst með nýjungum og þróun í Byrjendalæsi, sem og á öðrum sviðum. Hún hefur góða yfirsýn yfir þarfir nemenda og aðlagar efnið að þörfum hvers nemanda. Hún er öflug fyrirmynd fyrir aðra kennara á yngsta stigi enda er hún faglega mjög sterk og gerir miklar kröfur til sín sem fagmenneskju. Hún ber hag nemendanna fyrir brjósti og leggur mikla áherslu á að grunnur þeirra í námi sé sterkur og góður. Drífa Magnúsdóttir er framúrskarandi Byrjendalæsiskennari.