Fara í efni

Leik og Sprell á Egilsstöðum og Djúpavogi

01.04.2026 Fréttir Djúpivogur Egilsstaðir

Í sumar mun Leik og Sprell standa fyrir vikulöngum söng- og leiklistarnámskeiðum á Djúpavogi og Egilsstöðum. Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 6-13 ára.

Á námskeiðum Leik og Sprell fá börn tækifæri til að skapa og leika í öruggu umhverfi. Þau læra túlkun í gegnum söng og leik, farið er yfir grunn í söngtækni og búin til glæný sýning sem vinir og fjölskyldumeðlimir fá að sjá í lok námskeiðsins. Öll fá að setja sinn svip á sýninguna með lagavali og hugmyndavinnu.

Dagsetningar

  • Egilsstaðir 22. júní til 26. júní kl. 9:00-12:00
  • Djúpivogur 29. júní til 3. júlí, kl. 9:00-12:00

Kennarar eru Almar Blær Sigurjónsson og Bjartey Elín Hauksdóttir

Allar nánari upplýsingar má finna á vef og samfélagsmiðlum Leik og sprell 

Skráning fer fram á Abler

Plaggat með auglýsingu fyrir leik og sprell

Leik og Sprell á Egilsstöðum og Djúpavogi
Getum við bætt efni þessarar síðu?