Múlaþing hlaut styrk úr Sprotasjóði fyrir þróunarverkefnið ,,Með leikinn að leiðarljósi“ fyrir skólaárið 2025–2026. Verkefnið er unnið í samstarfi allra sex leikskólanna í Múlaþingi sem og leikskólans á Vopnafirði. Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri er einnig þátttakandi og fer með verkefnastjórn verkefnisins.
Markmið verkefnisins er að efla lærdómssamfélag leikskólanna þar sem leikurinn er hafður að leiðarljósi. Lögð er áhersla á faglega teymisvinnu, jákvæða vinnustaðamenningu, markvissa ígrundun og nám í gegnum leik. Jafnframt er stefnt að því að styrkja traust, virðingu og virka þátttöku allra sem koma að verkefninu.
Allt starfsfólk leikskólanna tekur þátt í verkefninu. Deildarstjórar og skólastjórnendur sækja sameiginlega fræðslu einu sinni í mánuði þar sem fjallað er um ákveðið málefni í hvert sinn. Deildarstjórar miðla síðan fræðslunni áfram til starfsfólks á deildum og unnið er markvisst með verkefni og æfingar í daglegu starfi.
Sandra Konráðsdóttir leikskólastjóri á Vopnafirði segir að starfsfólk finni að verkefnið er að skila sér inn í daglegt starf. Þá sagði hún einnig að ,,Teymisvinna stuðlar að betri lausnum á vandamálum. Þegar ólík sjónarmið og reynsla koma saman verða hugmyndir fjölbreyttari og liklegra er að finna skapand lausnir. Starfsfólk sem finnur að framlag þess skiptir máli í teyminu upplifir meiri hvatningu og metnað til að standa sig vel. Þegar allri vinna saman að sameiginlegu markmiði eykst ánægja og vellíðan í starfi.“