Fara í efni

Léttskýjað og létt stemning á Unglingalandsmóti

01.08.2025 Fréttir Egilsstaðir

Unglingalandsmót UMFÍ hófst með lífi og fjöri á Egilsstöðum í gær. Þúsundir mótsgesta flykktust í góða veðrið í bænum og kom sér fyrir á tveimur risastórum tjaldsvæðum, sem fólk gistir á. Skráning er afskaplega góð á mótið og hefur þurft að flýta nokkrum greinum. Gríðarlega gott veður er í bænum, milt en dumbungur.

Mótshaldarar hvetja ökumenn til að hafa varann á þegar ekið er um bæinn, draga úr hraða sínum. Eins er brýnt fyrir mótsgestum að hafa augun hjá sér og passa sig á bílum, enda fer þjóðvegur 1 fram hjá tjaldsvæðum mótsins. Eins vara viðbragðsaðilar unga þátttakendur við klifri í klettum ofan við tjaldsvæðin. Það er hættuleikur.

Fjör í fjölda greina

Austfirðingar eru langfjölmennasti hópur þátttakenda á mótinu en rúmlega 300 börn og ungmenni frá Ungmenna- og íþróttasambandi Austurlands (UÍA) á aldrinum 11 - 18 ára eru skráð til leiks. Í kringum 1.100 eru skráð á mótið og ljóst að um fimm þúsund gestir eru á mótinu.

Dagurinn hófst með keppni í grasblaki, knattspyrnu og borðtennis og síðar í dag verður blásið til keppni í borðtennis, rafíþróttum og fleiri greinum.

Unglingalandsmót UMFÍ verður sett með pompi og prakt á Vilhjálmsvelli klukkan 20 í kvöld. Þar munu þátttakendur ganga á völlinn í skrúðgöngu, hver hópur með sínu íþróttahéraði.

Eftir mótssetninguna verður fjör fyrir alla fjölskylduna og geta allir mótsgestir tekið þátt í fjölda viðburða um allan bæ. Fólk getur kíkt við og farið í körfuboltapartý, spilað blindrafótbolta og badminton LED, skemmt sér í frjálsum íþróttum, spilað frisbígolf og farið að dansa fram til klukkan 23.

Mynd: Unnar Erlingsson
Mynd: Unnar Erlingsson
Getum við bætt efni þessarar síðu?