Margt skemmtilegt er fram undan í Sláturhúsinu Menningarmiðstöð á Egilsstöðum á næstu dögum; jazzveisla, opnun listasýningar og fjölskyldutónleikar.
Sunna Gunnlaugs og Enzo Favata hófu jazzvöku Sláturhússins 10. september klukkan 20:00.
Þar mættust tvær einstakar raddir í samtali á tónleikum með sardínska saxófón- og klarinettleikaranum Enzo Favata og píanistanum Sunnu Gunnlaugs þegar þau leiddu saman hesta sína.
Bliss Quintet, með íslenska píanóleikarann Benjamín Gísla innanborðs, kemur síðan fram í Sláturhúsinu föstudaginn 11. september klukkan 20:00.
Síðustu ár hefur hljómsveitin vakið mikla athygli í norsku jazzsenunni og leggur hljómsveitin áherslu á leikandi samskipti, villta orku og frjálsan spuna. Oscar Andreas Haug spilar á trompet, Zakarias Meyer Øverli á saxófón, Benjamín Gísli Einarsson píanó, Gard Kronborg bassa og Rino Sivathas leikur á trommur.
Laugardaginn 12. september klukkan 14:00 opnar sýning um ævistarf Guðrúnar Sigurðardóttur frá Húsey.
Sýnd verða brot af verkum Guðrúnar, allt frá barnæsku og fram á þennan dag. Sýningunni er ætlað að vekja okkur til umhugsunar um hvers virði ævistarf fólks er sem á skapandi hátt brennur fyrir því að gera samfélagið sitt betra og áhugaverðara.
Sýningarstjórar eru Lára Vilbergsdóttir og Signý Ormarsdóttir.
Síðast en ekki síst má sjá hljómsveitina Moses Hightower klukkan 17:00 þann 12. september á fjölskyldutónleikum.
Frítt inn fyrir 16 ára og yngri.
Það verður allt að frétta; glóðvolg nýútkomin plata í farteskinu, gamlir slagarar og enn þá nýrri lög af annarri í smíðum á prógramminu.
Sjáumst í Sláturhúsinu.

Sunna Gunnlaugs og Enzo Favata

Bliss Quintet

Moses Hightower