Þann 30. apríl klukkan 17:00 verður sýningin ,,Ísland með mínum augum“ opnuð í Sláturhúsinu. Sýningin mun standa út maí.
Sýningin er liður í List án landamæra og samanstendur af verkum eftir 15 listamenn sem öll eru úr Stólpa.
Til sýnis verða málverk, þrívíddarmyndir og leirlistaverk sem listamennirnir hafa verið að vinna að síðan í september.
Aðalþema sýningarinnar er ,,Ísland með mínum augum“ og deila listamennirnir þannig sinni sýn á þemanum með samfélaginu.
Fatlað fólk vill vera sýnilegt, taka þátt og gefa af sér og er sýningin liður í því.
Listrænn stjórnandi sýningarinnar er Zuzana Cremanova.
Íbúar og gestir eru hvattir til að kíkja í Sláturhúsið og berja listaverkin augum.