Fara í efni

Lokað fyrir kalt vatn á Seyðisfirði á fimmtudagskvöld 27. ágúst

27.08.2026 Fréttir Seyðisfjörður

Vegna tengingar á nýrri stofnlögn í Ránargötu þarf að loka fyrir kalt vatn í hluta Seyðisfjarðar fimmtudagskvöldið 27. ágúst. Á mynd með fréttinni má sjá hvar verður vatnslaust.

Gert er ráð fyrir að tenging hefjist um kl. 22:00 og standi fram eftir nóttu.

Nýja stofnlögnin leysir af hólmi eldri stofnlögn sem komin er til ára sinna. Einnig gerir hún vatnsveituna betur í stakk búna til að sinna nýju hlutverki svæðisins.

Send verða SMS á símanúmer sem skráð eru innan áhrifasvæðis. Þau sem fá ekki skilaboð en hafa búsetu, reka fyrirtæki eða annað innan svæðisins geta skráð númerið sitt hér til að komast á tilkynningalista HEF veitna: SMS við þjónusturof | HEF veitur

- Frétt af heimasíðu HEF veitna.

Lokað fyrir kalt vatn á Seyðisfirði á fimmtudagskvöld 27. ágúst
Getum við bætt efni þessarar síðu?