Fara í efni

Lokað fyrir kalt vatn í Ránargötu og Fjarðargötu 21. október

20.10.2026 Tilkynningar Seyðisfjörður

Miðvikudaginn 21. október verður vatnslaust í Ránargötu og Fjarðargötu á Seyðisfirði vegna tengingar nýrrar vatnslagnar í Ránargötu. 

Vatnslaust verður á eftirtöldum svæðum:

  • Ránargata, frá tjaldsvæðisafleggjaranum og út eftir
  • Fjarðargata, öll gatan

Áætlað er að vatnið verði tekið af um klukkan 10:00 og að það verði komið aftur á um klukkan 18:00. Tímasetningar geta breyst ef eitthvað óvænt kemur upp.

Íbúum er bent á að hafa krana lokaða á meðan og láta vatnið renna í smástund þegar það kemst aftur á, þar sem loft eða grugg getur verið í lögnum fyrst um sinn.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Frétt á heimasíðu HEF veitna

Lokað fyrir kalt vatn í Ránargötu og Fjarðargötu 21. október
Getum við bætt efni þessarar síðu?