Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Múlaþingi og Vopnafirði var haldin í Egilsstaðakirkju mánudaginn 16. mars. Tólf nemendur úr sex skólum tóku þátt, nemendur Djúpavogsskóla taka þátt í keppninni í samvinnu við Grunnskóla Hornafjarðar.
Stóra upplestrarkeppnin hefur verið haldin á Austurlandi í yfir tvo áratugi. Þátttakendur keppa í þremur umferðum með áheyrilegum og vönduðum upplestri.
Í fyrstu umferð lásu keppendur texta úr bókinni Fjársjóðsleit í Granada eftir Ólaf Pál Jónsson. Í annarri umferð völdu þeir úr 10 ljóðum sem öll fjalla um fugla í íslenskri náttúru. Í þriðju og lokaumferð lásu þeir ljóð að eigin vali eftir ýmsa höfunda.
Hátíðin var glæsileg og vel heppnuð. Nemendur úr Tónlistarskólanum á Egilsstöðum glöddu gesti með tónlistarflutningi.
Keppendur stóðu sig með prýði og voru skólum sínum til mikils sóma. Allir þátttakendur fengu viðurkenningu fyrir þátttökuna ásamt bókagjöf og rós. Sigurvegararnir hlutu gjafabréf frá Íslandsbanka.
Sigurvegarar Stóru upplestrarkeppninnar 2026:
- sæti: Inga Hrafney Stefánsdóttir, Egilsstaðaskóla
- sæti: Manuel Arnar Logi Ragnarsson, Brúarásskóla
- sæti: Fróði Hlynsson, Brúarásskóla
Sigurvegurunum og skólum þeirra er óskað innilega til hamingju og öllum keppendum þakkað fyrir fallegan og vandaðan lestur!
Þakkir eru einnig færðar öllum upplesurum, tónlistarflytjendum, kennurum og foreldrum fyrir frábæran undirbúning sem skilaði sér í vönduðum og áhrifaríkum flutningi.

Sigurvegarar Stóru upplestrarkeppninnar 2026