Fara í efni

Lumar þú á hugmynd að samfélagsverkefni?

10.03.2026 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Eins og undanfarin ár óskar Múlaþing eftir hugmyndum að samfélagsverkefnum frá íbúum sveitarfélagsins. Heildarupphæð til framkvæmda fyrir þessi verkefni er 10 milljónir, sem skiptast þannig að 2 milljónir eru til framkvæmda á Borgarfirði, 2 milljónir á Djúpavogi, 2 milljónir á Seyðisfirði og 4 milljónir á Fljótsdalshéraði. Sem dæmi um samfélagsverkefni má nefna stígagerð, leiktæki, fræðslu- og upplýsingaskilti, hvíldarbekk og svo framvegis.

Hægt er að senda tillögur að hugmyndum í gegnum eftirfarandi vefsíðu eða á netföng fulltrúa sveitarstjóra á Borgarfirði, á Djúpavogi og á Fljótsdalshéraði.

Á fundi heimastjórnar Seyðisfjarðar 6. mars síðastliðinn var ákveðið að framlagi því sem heimastjórnin hefur til umráða skyldi að þessu sinni varið í nýja bíóstóla í Herðubreið, enda telur heimastjórnin þetta samfélagslega mikilvægt verkefni. Í þetta skipti verður því ekki óskað eftir hugmyndum að samfélagsverkefnum á Seyðisfirði.

Mikilvægt er að hugmyndunum sem sendar eru sé lýst eins vel og mögulegt er. Ljósmyndir af sambærilegum verkefnum, tillaga að staðsetningu, áætlun um kostnað og aðrar viðeigandi upplýsingar til útskýringar og útfærslu á hugmyndinni er gott að senda með. Rétt er að hafa í huga að ekki er víst að hægt sé að framkvæma allar þær hugmyndir sem berast. Einnig geta hugmyndir verið útfærðar og framkvæmdar með öðrum hætti en hugmyndasmiður leggur til.

Frestur til að skila inn hugmyndum er til 25. mars 2026. Gert er ráð fyrir að heimastjórnir taki þær hugmyndir sem berast fyrir á fundi sínum í byrjun apríl og munu í framhaldinu skila sínum tillögum til umhverfissviðs.

Í fyrra voru eftirfarandi verkefni, sem hugmyndir bárust um frá íbúum, framkvæmd eða eru í vinnslu:

  • Endurbætur á göngustíg um Klifið, á Djúpavogi.
  • Uppsetning gufubaðsaðstöðu í íþróttamiðstöðinni, á Djúpavogi (enn í vinnslu).
  • Settur upp rampur fyrir hjól, hjólabretti og línuskauta, á Seyðisfirði.
  • Stuðningur við foreldrafélag leikskóladeildar Seyðisfjarðarskóla til kaupa og uppsetningar á leiktæki fyrir yngstu börnin, á Seyðisfirði.
  • Kastali á leiksvæði við Fjarðarborg, grunnskóla og Sparkhöll, á Borgarfirði.
  • Ærslabelgur við Fellaskóla, á Fljótsdalshéraði.
  • Stuðningur við Ungmennafélagið Þristinn við að byggja up frisbígolfvöll í Selskógi, á Fljótsdalshéraði.
  • Stuðningur við Egilsstaðasporið til snjóframleiðslu í Selskógi fyrir skíðagönguspor, á Fljótsdalshéraði (enn í vinnslu).
  • Gróðurkassar við leikskólann Tjarnarland, á Fljótsdalshéraði.
  • Almenningsgarður í Fellabæ, á Fljótsdalshéraði (enn í vinnslu).
Lumar þú á hugmynd að samfélagsverkefni?
Getum við bætt efni þessarar síðu?