Fara í efni

Lundinn er kominn í Hafnarhólma

10.04.2026 Fréttir

Lundinn settist upp í Hafnarhólma undir kvöld í gær, fimmtudaginn 9. apríl. Koma lundans markar alltaf tímamót í hugum Borgfirðinga, sem og margra annarra, enda er þá vorið að öllum líkindum handan við hornið þegar hann lætur loksins sjá sig. Á þessum tíma árs eru íbúar gjarnan á „útkíkkinu“ eftir lundanum og getspakir setja fram tilgátur um hvenær hann muni setjast upp í Hólmann, sem kallað er. Þegar hann hefur sest upp tekur við vorhreingerning í holunum og undirbúningur fyrir sumardvölina.

Talið er að í Hafnarhólma dvelji að jafnaði um 10.000 pör yfir sumartímann og óvíða er þægilegra að berja lundann og aðra sjófugla eins og ritu, silfurmáf, fýl og æðarfugl augum. Staðurinn er einn af helstu seglum Austurlands og fjölmargir ferðamenn, íslenskir og erlendir, eru tilbúnir að leggja lykkju á leið sína til Borgarfjarðar eystri til að heimsækja lundann en árið 2025 sóttu yfir 54.000 gestir Hafnarhólma heim.

Þá er hægt að kíkja á þessa vinalegu fugla í gegnum vefmyndavélina í Hólmanun, þó auðvitað jafnist ekkert á við að sjá hann með berum augum.

Lundinn dvelur í Hafnarhólma fram í miðjan ágúst en þá heldur hann aftur á haf út til vetrardvalar.

Verið hjartanlega velkomin í Hafnarhólma.

Lundinn er kominn í Hafnarhólma
Getum við bætt efni þessarar síðu?