Í Múlaþingi búum við íbúar við þann munað að vegalengdir innanbæjar eru oftast stuttar. Í raun svo stuttar að líklegt er að það taki innan við korter að ganga þær eða hjóla.
Þó er það svo að við veljum ansi oft þægindin sem fylgja því að setjast upp í bíl frekar en að klæða okkur örlítið betur og halda af stað gangandi eða hjólandi.
Það er til mikils að vinna því breyttar ferðavenjur geta:
- Bætt líkamlega og andlega heilsu með hreyfingu og útivist.
- Bætt umferðaröryggi og dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda með færri bílum á götunum.
- Skilað sér í eldsneytissparnaði með minni notkun bíla.
Að velja oftar að ganga, hjóla eða nota aðra virka ferðamáta, þau okkar sem það geta, getur því haft margvísleg jákvæð áhrif. Því fleiri sem nýta aðra ferðamáta en bílinn aðeins oftar, því meiri getur ávinningurinn orðið.
Kortasjáin Korter
Til að hvetja fólk til að skoða sínar ferðavenjur unnu Orkusetur og Vistorka að tæknilausn utan um alþjóðlega hugmyndafræði sem snýst um að íbúar geti fullnægt flestum þörfum sínum í stuttri göngu- eða hjólaferð frá heimili sínu. Verkefnið samanstendur af vefsíðu, appi og prentuðu korti og segir einn af hönnuðum verkefnisins fólk oft vanmeta hversu langt það kemst án þess að nota einkabílinn.
Tæknilausnin nefnist Korter en þar er hægt að fletta upp heimilisföngum eða öðrum staðsetningum til að komast að því hversu langt þaðan viðkomandi kemst á 15 mínútum hjólandi eða gangandi.
Á meðfylgjandi mynd sýnir græni liturinn hve stórt svæði er í 15 mínútna göngufjarlægð frá miðsvæði Djúpavogs. Sömu forsendur eiga við um bláa litinn ef viðkomandi væri hjólandi.
Íbúar eru hvattir til þess að huga að ferðavenjum sínum og spyrja sig hvort ekki megi skilja bílinn oftar eftir heima.