Fara í efni

Má ekki hvíla bílinn oftar?

21.05.2026 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Í Múlaþingi búum við við þann munað að vegalengdir innanbæjar eru oftast stuttar — oft svo stuttar að það tekur innan við korter að ganga þær eða hjóla.

Samt veljum við ansi oft þægindin sem fylgja því að setjast upp í bíl, í stað þess að klæða okkur aðeins betur og fara gangandi eða hjólandi.

Það er til mikils að vinna því breyttar ferðavenjur geta:

  • bætt líkamlega og andlega heilsu með aukinni hreyfingu og útivist,
  • aukið umferðaröryggi og dregið úr mengun með færri bílum á götunum,
  • og skilað eldsneytissparnaði með minni notkun einkabílsins.

Að velja oftar að ganga, hjóla eða nota aðra virka ferðamáta, þau okkar sem það geta, getur því haft margvísleg jákvæð áhrif.

Verum tillitssamir vegfarendur

Í umferðinni er mikilvægt að sýna hvert öðru tillitssemi. Á samnýttum gangstéttum og stígum þurfa hjólandi að taka tillit til gangandi vegfarenda, á það einnig við um notendur rafhlaupahjóla.

Þá þurfa ökumenn bifreiða að huga sérstaklega að gangandi og hjólandi. Það skiptir máli að stöðva fyrir vegfarendum við gangbrautir, taka tillit til hjólandi vegfarenda á götum og gefa stefnuljós.

Með gagnkvæmri tillitssemi verður umferðin öruggari og þægilegri fyrir alla.

Kortasjáin Korter

Á kortasjánni Korter geta íbúar séð hversu langt þeir komast gangandi - eða hjólandi á korteri. Einn af hönnuðum verkefnisins segir að fólk vanmeti oft hversu langt það kemst án þess að nota einkabílinn.

Á meðfylgjandi mynd sýnir græni liturinn hversu stórt svæði er í 15 mínútna göngufjarlægð frá miðsvæði Egilsstaða á meðan blái liturinn sýnir samsvarandi vegalengd fyrir hjólandi.

Íbúar eru hvattir til að huga að eigin ferðavenjum og spyrja sig hvort ekki megi hvíla bílinn oftar.

Má ekki hvíla bílinn oftar?
Getum við bætt efni þessarar síðu?