Veðurstofa Íslands hefur í sumar staðið fyrir mælingum í Strandartindi á Seyðisfirði í þeim tilgangi að kanna hvort sífreri sé til staðar í urð í um 700 metra hæð. Mælingarnar voru framkvæmdar með aðstoð svissneska fyrirtækisins Geotest AG.
Niðurstöður benda til þess að ekki sé um samfelldan sífrera að ræða sem telst jákvætt. Þær útiloka þó ekki staðbundnar íslinsur og mögulegt er að samfelldur sífreri hafi verið til staðar áður fyrr en bráðnað að mestu.
Til að afla frekari upplýsinga verður borað í urðina á tveimur stöðum þar sem mælingarnar gefa vísbendingar um staðbundinn sífrera. Köfunarþjónustan ehf. hefur tekið að sér borunina. Stefnt er að því að þyrla flytji bor ásamt tilheyrandi búnaði og mannskap til Seyðisfjarðar í dag ef aðstæður leyfa. Boraðar verða allt að 10 metra djúpar holur og komið fyrir hitanemum sem fylgst verður með yfir lengri tíma.
Mælingarnar og hitamælingar úr borholunum munu gefa mikilvægar upplýsingar um aðstæður undir yfirborði og auka þekkingu á eðli skriðuhættu á Seyðisfirði. Gera þarf ráð fyrir að hitamælingar standi yfir í að minnsta kosti einn vetur áður en hægt verður að draga fyrstu ályktanir.