Fara í efni

Margvísleg verkefni í gangi hjá Múlaþingi

18.03.2026 Fréttir

Á síðustu vikum hafa fjölbreytt verkefni verið í gangi hjá stjórnsýslu Múlaþings og sveitarstjóra, allt frá samgöngumálum og lagafrumvörpum til menningarviðburða og uppbyggingar í samfélaginu. Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri tæpti á helstu málum sem unnið hefur verið að undanfarið í skýrslu sinni á sveitarstjórnarfundi þann 11. mars.

Samgöngumál og hagsmunagæsla

Sveitarstjóri sat fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í Reykjavík þar sem talað var fyrir umsögn sveitarfélagsins um samgönguáætlun. Fulltrúar frá Austurlandi lögðu áherslu á að bæta hlut landshlutans í áætluninni og virðist vera skilningur hjá nefndarmönnum á þeim sjónarmiðum.

Samgöngumál voru einnig efst á baugi á fundum með þingmönnum kjördæmisins og ráðherrum í kjördæmaviku í febrúar.

Í mars fór síðan fram fundur með innviðaráðherra í Reykjavík þar sem samgöngumál voru í brennidepli. Þar var meðal annars rætt um mikilvægi þess að Fjarðarheiðargöng komist aftur efst á blað í jarðgangaáætlun ríkisins og að aukið fjármagn verði sett í uppbyggingu heilsársvegar yfir Öxi. Jafnframt var fjallað um fleiri samgöngumál, svo sem mikilvægi þess að kostnaðarhlutdeild ríkisins í hafnarframkvæmdum haldist óbreytt.

Umsagnir um lagafrumvörp og breytingar á regluverki

Sveitarfélagið hefur á síðustu vikum unnið að umsögnum um nokkur lagafrumvörp sem varða hagsmuni þess. Þar má nefna frumvarp um breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits, þar sem lagt er til að verkefnið flytjist frá sveitarfélögum til ríkisins. Sveitarfélög á Austurlandi hafa gagnrýnt tillöguna og bent á að rekstur heilbrigðiseftirlits á svæðinu gangi vel í núverandi formi.

Þá hefur sveitarfélagið einnig skilað umsögn um frumvarp sem felur í sér að afnema undanþágu orkumannvirkja frá fasteignaskatti sveitarfélaga. Nái frumvarpið fram að ganga mun það auka tekjur sveitarfélagsins, meðal annars vegna mannvirkja við Kárahnjúka.

Fiskeldissjóður og væntanleg lagabreyting

Nokkrir starfsmenn sveitarfélagsins hafa undanfarið eytt miklum tíma í að vinna umsóknir í fiskeldissjóð. Þó nokkrar breytingar voru gerðar á skilyrðum sjóðsins sem þurfti að taka tillit til í umsóknarvinnunni. Á sama tíma er nýtt frumvarp um lagareldi væntanlegt til Alþingis sem meðal annars gerir ráð fyrir að sjóðurinn verði lagður niður og þessar tekjur renni beint til þeirra sveitarfélaga þar sem eldið er stundað.

Frumvarpið og önnur mál á sviði sjávarútvegsmála voru rædd á fundi Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem sveitarstjóri tók þátt í á Akureyri í mars.

Mannauðsmál og breytingar í stjórnsýslunni

Í byrjun árs var tekið upp nýtt verklag varðandi auglýsingu starfa hjá sveitarfélaginu. Nú þarf starfs- og kjaranefnd að samþykkja allar auglýsingar áður en þær fara í birtingu. Markmiðið er að tryggja að vel sé farið yfir þörfina fyrir ráðningar og að fjárveitingar séu til staðar.

Þá hefur nýr sviðsstjóri stjórnsýslu, Hlynur Jónsson, hafið störf hjá sveitarfélaginu. Hann tekur við starfinu af Óðni Gunnari Óðinssyni sem lætur af störfum í lok mars eftir farsælt starf.

Uppgjör og ársreikningur

Fjármálateymi sveitarfélagsins hefur unnið að uppgjöri og gerð ársreiknings undanfarnar vikur. Verkefnið var umfangsmikið í ár þar sem nokkrar nýjar einingar voru teknar inn í uppgjörið; Minjasafn Austurlands, Ársalir og Vísindagarður á Egilsstöðum. Samhliða þessu var verið að innleiða nýtt regluverk um bókhaldskerfi sveitarfélaga.

Atvinnuþróun á Seyðisfirði

Unnið er áfram af krafti að atvinnuverkefnum á Seyðisfirði með aðkomu ráðgjafa sem vinnur að undirbúningi verkefna fyrir mögulega fjárfesta. Ríkisstjórnin hyggst einnig styðja verkefnið með því að setja á fót samstarfshóp starfsmanna úr fimm ráðuneytum sem mun vinna að framgangi þess með sveitarfélaginu.

Nýtt húsnæði á Fellavelli

Í lok febrúar fór fram afhending nýs húsnæðis á Fellavelli frá byggingarfélagi Hattar til sveitarfélagsins. Um er að ræða glæsilega framkvæmd þar sem íþróttafélagið hafði umsjón með framkvæmdinni og náði þannig að hámarka nýtingu þeirra fjármuna sem til verkefnisins voru lagðir.

Menning, íþróttir og samfélag

Ýmislegt hefur einnig verið um að vera á sviði menningar og samfélags. Leikfélag Menntaskólans á Egilsstöðum frumsýndi nýverið söngleikinn Fyrsti kossinn við góðar undirtektir og lið skólans hefur jafnframt náð góðum árangri í spurningakeppninni Gettu betur, þar sem skólinn er kominn í undanúrslit.

Á Seyðisfirði opnaði Skaftfell sýninguna Geiri – opið hús, þar sem verk alþýðulistamannsins Ásgeirs Jóns Emilssonar eru til sýnis samhliða verkefni sem miðar að því að safna sögum og gögnum sem tengjast listamanninum.

Á Bókasafni Múlaþings hafa nýir opnunartímar tekið gildi eftir sameiningu bókasafna sveitarfélagsins um áramótin. Á Djúpavogi er nú opið fjóra daga í viku í stað tveggja áður og á Egilsstöðum hefur verið bætt við laugardagsopnun sem hefur verið vel tekið af íbúum. Þá stendur þar einnig yfir farandsýning frá Norræna húsinu um Línu Langsokk sem hefur vakið mikinn áhuga.

Til viðbótar má nefna fund starfsmanna úr stafræna teymi Sambands íslenskra sveitarfélaga með sveitarfélögunum á Austurlandi, fundi UMFÍ og ÍSÍ á Egilsstöðum um stöðu íþrótta og stefnumótun íþróttahreyfingarinnar ásamt samtali við ungt fólk, auk heimsóknar umsjónarmanns tölvunarfræðináms við Háskólann á Akureyri sem býður upp á námið á Reyðarfirði.

Fram undan

Á næstu vikum eru fram undan ýmsir fundir og ferðir en sveitarstjóri mun meðal annars heimsækja Skotland til að kanna samstarfsmöguleika varðandi háskólamenntun og ferjusamgöngur, auk þess að sækja stærstu skemmtiferðaskiparáðstefnu heims í Bandaríkjunum.

Mynd: Daníel Örn Gíslason
Mynd: Daníel Örn Gíslason
Getum við bætt efni þessarar síðu?