Fara í efni

Matvælastofnun biður um tilkynningar um dauða villta fugla

04.05.2021 Fréttir

Matvælastofnun vekur athygli á að stofnunin óskar eftir tilkynningum ef villtir dauðir fuglar finnast, nema augljóst sé að þeir hafi drepist af slysförum. Tilgangurinn er að skima þá fyrir fuglaflensu og fylgjast þannig með mögulegri útbreiðslu hennar meðal farfugla hérlendis. Best er að tilkynna með því að skrá ábendingu á vef stofnunarinnar, en líka er hægt að hringja í síma 530-4800 á opnunartíma eða senda tölvupóst á netfangið mast@mast.is.

Þetta eru viðbrögð við því að viðbúnaðarstig vegna varna gegn fuglaflensu hefur verið aukið. Það þýðir einnig að allir fuglar í haldi þurfa tímabundið að vera hafðir í yfirbyggðum gerðum þar sem villtir fuglar komast ekki inn eða í fuglaheldum húsum. Sóttvarnir skulu viðhafðar til að hindra smit frá villtum fuglum í alifugla. Matvælastofnun hvetur alla sem halda alifugla til að skrá fuglahald sitt í gegnum þjónustugáttina á vef stofnunarinnar.

Meiri upplýsingar er að finna í frétt á heimasíðu Matvælastofnunar.

Matvælastofnun biður um tilkynningar um dauða villta fugla
Getum við bætt efni þessarar síðu?