Fara í efni

Mengun í drykkjarvatni á Borgarfirði

03.10.2023 Fréttir Borgarfjörður

Við reglubundið eftirlit með neysluvatni á Borgarfirði, kom í ljós að vatnið er örverumengað. Um er að ræða E. coli/kólígerlar, sem gefur til kynna að vatnið er mengað af saur frá mönnum eða blóðheitum dýrum.

Nauðsynlegt er að sjóða vatn til neyslu. Óhætt er að nota vatnið til annarra þarfa svo sem til baða þar sem fjöldi gerlanna var innan þeirra marka, sem miðað er við að megi vera í baðvatni í náttúrunni (baðstaðir í 1. flokki samkvæmt reglugerð númer 460/2015 um baðvatn á baðstöðum í náttúrunni).

Frekari sýnataka stendur yfir og mun HEF senda út upplýsingar þegar niðurstöður úr þeim liggja fyrir. Frekari upplýsingar má nálgast hér.

Mengun í drykkjarvatni á Borgarfirði
Getum við bætt efni þessarar síðu?