Fara í efni

Mengun í neysluvatni á Borgarfirði

17.08.2026 Fréttir Borgarfjörður

Við reglubundið eftirlit Heilbrigðiseftirlits Austurlands á neysluvatni á Borgarfirði eystra í síðustu viku greindust e.coli gerlar í sýninu. Að svo stöddu er ekki ljóst hvað veldur menguninni en talið er að náttúrulegt smit hafi komist í brunna.

Þeim tilmælum er beint til íbúa að sjóða neysluvatn fyrir neyslu. Óhætt er að nota vatnið til annarra þarfa s.s. til baða þar sem fjöldi gerlanna var innan þeirra marka, sem miðað er við að megi vera í baðvatni í náttúrunni.

Leiðiningar um suðu á neysluvatni

Framkvæmdir standa nú yfir á vatnsveitu Borgarfjarðar sem miða einmitt að uppsetningu á gegnumlýsingartæki fyrir vatnsveituna sem ætlað er að koma í veg fyrir mengun sem þessa, en þeim er ekki lokið. Lagt verður kapp á að koma gegnumlýsingartæki í gagnið en ekki er ljóst hvort það næst í vikunni.

Uppfærslur um gang mála verða settar inn á miðla HEF, íbúar Borgarfjarðar eru hvattir til að fylgjast með þar.

Vatnstankur í framkvæmdafasa á Borgarfirði. Mynd tekin af vef HEF
Vatnstankur í framkvæmdafasa á Borgarfirði. Mynd tekin af vef HEF
Getum við bætt efni þessarar síðu?