Staðgengill sveitarstjóra flutti skýrslu sveitarstjóra á fundi sveitarstjórnar þann 15. apríl síðastliðinn en Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri var þá stödd á Miami þar sem hún sótti stærstu skemmtiferðaskiparáðstefnu heims. Þar var unnið að því að byggja aftur upp traust gagnvart greininni eftir innleiðingu innviðagjalda, sem hefur haft áhrif á komur skipa til landsins. Árangur hefur náðst með stjórnvöldum með lækkun gjaldanna en áfram þarf að vinna að því að tryggja að skemmtiferðaskip snúi aftur í auknum mæli til hafna landsins.
Sérstaka áherslu þarf að leggja á að ná aftur smærri hringsiglingarskipum í hafnirnar okkar en algjört hrun hefur orðið í komum þeirra vegna innleiðingar á virðisaukaskatti sem þau þurftu ekki að greiða áður. Þessi skip eru afar mikilvæg fyrir ferðaþjónustu á stöðum eins og Borgarfirði og Djúpavogi.
Alþjóðlegt samstarf og áskoranir í samgöngum
Sveitarstjóri tók þátt í ársfundi Cruise Iceland í mars þar sem Aðalheiður Borgþórsdóttir var heiðruð fyrir framlag sitt til uppbyggingar skemmtiferðaskipaferðaþjónustu á Íslandi. Aðalheiður lætur af störfum í vor vegna aldurs eftir farsælan feril og verður hennar skarð vandfyllt.
Unnið var að því að efla alþjóðlegt samstarf, meðal annars með viðræðum við skosk yfirvöld um mögulegar ferjusiglingar milli Skotlands og Seyðisfjarðar. Þá fóru einnig fram samtöl við háskólann í hálöndum og eyjum (University of Highlands and Islands) í Skotlandi um aukið samstarf sem gæti styrkt Austurland til framtíðar.
Marsmánuður einkenndist af krefjandi veðuraðstæðum. Fjarðarheiði var lokuð ítrekað og þurfti að virkja aðgerðarstjórn almannavarna á Austurlandi vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði, þar sem hús voru rýmd og viðbúnaður aukinn. Þessar aðstæður undirstrika enn frekar mikilvægi samgöngubóta á svæðinu.
Öflugt samfélagslíf og viðburðir fram undan
Fundarhöld voru umfangsmikil á tímabilinu, þar á meðal voru ársfundur Austurbrúar, aðalfundir SSA, HEF veitna og Ársala, auk þess sem áhugaverður opinn fundur Viðskiptaráðs var haldinn á Egilsstöðum.
Mannauðsmál voru áfram fyrirferðarmikil með ráðningum og breytingum í starfsmannahaldi. Ráðið hefur verið í stöðu hafnarvarðar á Djúpavogi fyrir Stefán Guðmundsson sem lætur af störfum vegna aldurs í haust og þá hefur fulltrúi sveitarstjóra á Djúpavogi sagt stöðu sinni lausri og hefur sú staða verið auglýst. Stjórnendateymisfundur Múlaþings fór fram í apríl og daginn eftir fór síðan fram vel heppnuð árshátíð starfsfólks sveitarfélagsins í Íþróttahúsinu á Egilsstöðum.
Menningarlíf blómstrar sem fyrr í Múlaþingi. Viðburðir á borð við „Connected by food“ og nýtt sviðsverk „Ég man“ í Sláturhúsinu nutu mikillar aðsóknar. Þá er lundinn sestur upp í Hafnarhólma á Borgarfirði sem jafnan gleður bæði gesti og gangandi á vorin og sumrin.
Í samstarfi allra sex leikskólanna í Múlaþingi og leikskólans á Vopnafirði er unnið að verkefni sem kallast „Með leikinn að leiðarljósi“ en Múlaþing hlaut styrk úr Sprotasjóði fyrir þetta þróunarverkefni fyrir skólaárið 2025–2026. Markmiðið er að efla lærdómssamfélag leikskólanna þar sem leikurinn er hafður að leiðarljósi.
Fram undan eru fjölbreyttir viðburðir, þar á meðal Hammondhátíðin á Djúpavogi, Upp með Öxina sem er verkefni 10. bekkinga á Djúpavogi, skipulagsfundur um miðbæ Egilsstaða, heimsókn háskólalestarinnar og flugráðstefna um framtíðarmöguleika Egilsstaðaflugvallar.
Að lokum er bent á að undirbúningur sveitarstjórnarkosninga í maí stendur yfir en fimm framboðslistar hafa verið staðfestir í Múlaþingi og hófst utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þeirra þann 17. apríl en mun hefjast 30. apríl vegna heimastjórnarkosninga.
Aðalheiður Borgþórsdóttir heiðruð á ársfundi Cruise Iceland.

Frá stjórnendateymisfundi Múlaþings.
Sveitarstjóri Múlaþings ásamt rektor Háskólans á Akureyri og bæjarstjóra Inverness í Skotlandi.