Fara í efni

Múlaþing auglýsir eftir rekstraraðila í Löngubúð

13.10.2026 Djúpivogur Auglýsingar

Sveitarfélagið Múlaþing auglýsir eftir rekstraraðila í Löngubúð á Djúpavogi frá 1. janúar 2027. Langabúð er elsta hús Djúpavogs, friðlýst og sögufrægt, og hýsir veitingastað, safn Ríkarðs Jónssonar myndhöggvara og ráðherrastofu Eysteins Jónssonar.

Leitað er að aðila sem getur annast veitingarekstur í húsinu, tryggt gestum aðgang að söfnunum og staðið fyrir fjölbreyttri menningarstarfsemi allt árið í anda Cittaslow.

Samningstími er til tveggja ára, með möguleika á framlengingu. Vakin er athygli á að framtíðarfyrirkomulag Ríkarðssafns er til skoðunar og kann það að hafa áhrif á starfsemi í húsinu.

Húsnæðið verður til sýnis. Nánari upplýsingar veitir Greta Mjöll Samúelsdóttir, fulltrúi sveitarstjóra á Djúpavogi, netfang greta.mjoll.samuelsdottir@mulathing.is, sími 4 700 700.

Umsóknum skal skilað á netfangið mulathing@mulathing.is, merktum „Langabúð – umsókn“, eigi síðar en klukkan 12:00 þann 3. nóvember 2026.

Útboðslýsing er aðgengileg hér, ásamt lista yfir innanstokksmuni og búnað í eigu Múlaþings í húsinu.

Múlaþing auglýsir eftir rekstraraðila í Löngubúð
Getum við bætt efni þessarar síðu?