Múlaþing hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem sveitarfélagið hefur verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem öll hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Fjölbreytt stjórnendateymi taka betri ákvarðanir, stuðla að sterkari menningu og betri árangri fyrir sveitarfélagið, íbúa og samfélagið allt.
Sveitarfélagið þakkar Jafnvægisvoginni fyrir viðurkenninguna og ekki síst sínu frábæra starfsfólki, sem hefur lagt sitt af mörkum til að gera þetta að veruleika.
Jafnrétti er ekki verkefni sem lýkur heldur stöðug vinna og Múlaþing ætlar að halda áfram að gera enn betur.
Viðurkenningarnar voru afhentar við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands í gær. Hver viðurkenningarhafi fékk einnig tré að gjöf sem verða gróðursett í dag í jafnréttislundi FKA í Heiðmörk.