Fara í efni

Múlaþing hvetur íbúa til að vera sýnileg í myrkrinu

15.12.2020 Fréttir

Íbúar Múlaþings eru duglegir við að hreyfa sig úti, sérstaklega núna þegar aðgengi að annarri hreyfingu er takmarkað. Nú er birtutíminn hvað stystur og þá sjást gangandi og hjólandi vegfarendur illa, þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós bíla. Það er því algjörlega nauðsynlegt að vegfarendur, bæði menn og dýr, séu vel endurskinsmerktir. Múlaþing sendir sérstaka hvatningu til íbúa um að ganga með endurskinsmerki og vera sýnileg í myrkrinu.

Tilboð á endurskini

Vaskur á Egilsstöðum býður 20% afslátt af endurskinsmerkjum og hjólaljósum til 20. desember. Endurskinsmerki má einnig finna í Húsi Handanna og A4 á Egilsstöðum, í Kjörbúðinni á Seyðisfirði og á Djúpavogi. Endurskinsvörur fyrir ferfætta vegfarendur má til dæmis finna í Landstólpa á Egilsstöðum.

Endurskinsmerkin eiga að vera sýnileg og er best að hafa þau á eftirfarandi stöðum:

  • Fremst á ermum
  • Hangandi meðfram hliðum
  • Á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum

Getur skilið milli lífs og dauða

Endurskinsmerki virkar eins og blikkljós þegar lýst er á það. Þeim mun fyrr og betur sem ökumenn sjá gangandi og hjólandi vegfarendur þeim mun minni líkur eru á að slys verði. Það er staðreynd að ökumenn sjá óvarða vegfarendur með endurskin fimm sinnum fyrr en annars og því getur notkun endurskinsmerkja skilið milli lífs og dauða.

Hér má sjá tilraun sem Samgöngustofa gerði á notkun endurskinsmerkja.

Múlaþing hvetur íbúa til að vera sýnileg í myrkrinu
Getum við bætt efni þessarar síðu?