Múlaþing tók miðvikudaginn 16. september á móti starfsfólki embættis landlæknis á Egilsstöðum þar sem dagurinn var helgaður lýðheilsu, heilsueflingu og samtali um hvernig nýta megi gögn og samstarf til að stuðla að bættri heilsu og vellíðan íbúa.
Fyrir hádegi funduðu fulltrúar embættis landlæknis með hagaðilum frá Múlaþingi og víðar af Austurlandi. Þar var rætt um stöðu lýðheilsumála á svæðinu, styrkleika og áskoranir og hvernig hagaðilar geta unnið saman að heilsueflingu og forvörnum.
Eftir hádegi fór fram kynning á lýðheilsuvísum 2026. Vísarnir veita mikilvægar upplýsingar um heilsu og líðan íbúa og nýtast sveitarfélögum og öðrum hagaðilum við að greina stöðu samfélagsins og beina áherslum og aðgerðum þangað sem þörfin er mest.
Múlaþing verður Heilsueflandi samfélag
Í lok dags undirrituðu Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri Múlaþings og María Heimisdóttir landlæknir samstarfssamning um Heilsueflandi samfélag.
Með samningnum er lagður grunnur að markvissu og heildrænu heilsueflingar- og forvarnarstarfi þar sem heilsa og vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Áhersla verður meðal annars lögð á að nýta gögn og þekkingu til að byggja áfram á því sem vel gengur og bregðast markvisst við þeim áskorunum sem samfélagið stendur frammi fyrir.
Múlaþing þakkar embætti landlæknis og öllum þátttakendum fyrir góðan og gagnlegan dag og hlakkar til áframhaldandi samstarfs.
