Múlaþing og Krabbameinsfélag Austurlands undirrituðu í dag samstarfssamning sem tryggir krabbameinsgreindum ókeypis aðgang að sund- og líkamsræktarstöðvum sveitarfélagsins. Dagsetning undirritunarinnar var vel við hæfi því að í dag er alþjóðlegi krabbameinsdagurinn.
Markmið samningsins er að efla forvarnarstarf og styðja við einstaklinga sem glíma við krabbamein innan starfssvæðis Krabbameinsfélags Austurlands. Samningurinn byggir á þeirri sýn að heilbrigður lífsstíll og virk þátttaka í forvörnum stuðli að bættum lífsgæðum og minnki líkur á alvarlegum sjúkdómum.
Múlaþing veitir einstaklingum sem eru í krabbameinsmeðferð styrk í formi ókeypis aðgangs að sund- og líkamsræktarstöðvum sveitarfélagsins. Múlaþing leggur til árskort í rækt og sund sem hluta af þessum stuðningi. Fyrirkomulagið er með þeim hætti að Krabbameinsfélag Austfjarða heldur utan um verkefnið fyrir hönd Krabbameinsfélags Austurlands og sendir nöfn þeirra sem óska eftir aðild til Múlaþings sem annast útgáfu rafrænna aðgangskorta fyrir viðkomandi.
Sem fyrr segir fór undirritunin fram á alþjóðlega krabbameinsdeginum. Hrefna Eyþórsdóttir, starfsmaður Krabbameinsfélags Austfjarða, segir verkefnið samræmast slagorði dagsins í ár, United by unique, einstaklega vel. „Slagorðið undirstrikar að meiri árangur næst þegar þjónusta, stuðningur og úrræði fyrir fólk sem tekst á við krabbamein byggja á nálgun sem tekur mið af aðstæðum og áskorunum hvers og eins. Með því að tryggja krabbameinsgreindum aðgang að líkamsrækt í heimabyggð er stigið skref til að koma til móts við fólk sem hér býr og aðstæður þess.“