Verkið felst í að endurnýja innviði annarrar hæðar Herðubreiðar og koma þar fyrir bókasafni Seyðisfjarðar og bæjarskrifstofum. Ennfremur að smíða brunahólfandi veggi kringum stiga fyrstu hæðar, koma fyrir lyftu milli hæða og gera neyðarútgang frá annarri hæð til suðausturs.
Innifalið í verkinu er allur frágangur innan- og utanhúss, endurnýjun lagna, þar með taldar hita-, neysluvatnslagnir, endurnýjun lýsingar, breytingar á rafkerfum ásamt því að koma fyrir nýju loftræstikerfi fyrir bókasafn og skrifstofur. Flatarmál annarrar hæðar er um það bil 200 fermetrar og framkvæmdasvæði fyrstu hæðar um það bil 70 fermetrar.
Verkið getur hafist strax eftir gerð samnings og skal að fullu lokið fyrir 7. júní 2027.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með mánudeginum 26. október 2026 og verða ekki afhent á pappír. Óska skal eftir gögnum með tölvupósti til umsjónarmanns útboðsins á netfangið jont@efla.is.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Múlaþings Lyngási 12, Egilsstöðum eigi síðar en þriðjudaginn 24. nóvember fyrir klukkan 14:00, þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum.
Útboðsvefurinn: Múlaþing óskar eftir tilboðum í verkefnið: Herðubreið, Austurvegur 4 á Seyðisfirði – Bókasafn og bæjarskrifstofur | Útboðsvefur