Múlaþing og Sinfóníuhljómsveit Austurlands hafa gert með sér samning um að Múlaþing styrki hljómsveitina um eina milljón króna næstu þrjú árin. Samningurinn er liður í að efla starfsemi sveitarinnar.
Sinfóníuhljómsveit Austurlands hefur verið starfrækt síðan 2018 og hefur síðan þá staðið fyrir fjölda tónleika þar sem flutt hafa verið verk eftir fjölbreyttan hóp tónskálda, allt frá gömlu meisturunum yfir í ung og efnileg tónskáld af Austurlandi.
Í lok síðasta árs var tilkynnt að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið muni styrkja Sinfóníuhljómsveit Austurlands um fimm milljónir króna árlega næstu þrjú árin. Í framhaldi af því samþykktu bæði byggðaráð Múlaþings og stjórn menningarstofu Fjarðarbyggðar að styrkja sveitina um eina milljón króna á ári á sama tímabili.
Samningurinn milli hljómsveitarinnar og Múlaþings var undirritaður í Sláturhúsinu menningarmiðstöð á Egilsstöðum á dögunum. Dagmar Ýr Stefánsdóttir sagði við það tilefni að Sinfóníuhljómsveit Austurlands hefði sannað gildi sitt sem mikilvæg stoð í menningarlífi svæðisins: „Starf Sinfóníuhljómsveitar Austurlands hefur verið eftirtektarvert á undanförnum árum. Hljómsveitin auðgar ekki aðeins menningarlíf svæðisins fyrir almenning til að njóta heldur skapar hún einnig mikilvægan vettvang fyrir hljóðfæraleikara, söngvara, kóra og lengra komna tónlistarnema sem er hér búa til að koma fram og vinna að list sinni“.
Sóley Þrastardóttir, formaður stjórnar Sinfóníuhljómsveitar Austurlands, segir stuðninginn skipta miklu máli: „Reglulegur stuðningur af þessu tagi er afar dýrmætur fyrir hljómsveitina. Hann gefur okkur ákveðinn stöðugleika og fyrirsjáanleika sem auðveldar okkur alla áætlanagerð og framkvæmd. Við erum afar þakklát fyrir þennan stuðning.”
Næsta verkefni hljómsveitarinnar eru stórtónleikar í Tónlistarmiðstöðinni á Eskifirði í apríl. Á efnisskránni verður frumflutningur á nýjum saxófónkonsert, Dichotomies, eftir Egilsstaðabúann Wesley Stephens. Einnig flytur hljómsveitin Sinfóníu nr. 9 eftir Antonín Dvořák og L'Arlésienne svítu nr. 2 eftir Georges Bizet.