Föstudaginn 15. maí voru haldnir Múlaþingsleikar í grunnskólum Múlaþings.
Markmið dagsins er að nemendur og starfsfólk í grunnskólunum kynnist mismunandi skólum og svæðum sveitarfélagsins. Múlaþing er víðfeðmt og því töluverð áskorun að setja upp skipulag fyrir daginn sem hentar öllum.
Verkefnið á sér langa sögu uppi á Fljótsdalshéraði en núna fóru einnig árgangar á Seyðisfjörð og Djúpavog.
Nemendur frá 1. bekk til 7. bekkjar dreifðust um sveitarfélagið og tóku þátt í dagskrá sem kennarar gestaskólans skipulögðu en unglingastigið tók þátt í árlegum forvarnardegi í Egilsstaðaskóla sem starfsfólk félagsmiðstöðva Múlaþings skipulagði.
Almenn ánægja var með daginn og unnið verður áfram að samvinnuverkefnum sem styðja við að nemendur Múlaþings fái að heimsækja alla grunnskóla í okkar fjölkjarna sveitarfélagi.



Myndir frá Egilsstaðaskóla.