Fara í efni

Námsferð kennara til Valencia

15.04.2026 Fréttir

Sextán leik- og grunnskólakennarar úr öllum leik- og grunnskólum í Múlaþingi og Vopnafirði fóru nýverið í námsferð til Valencia á Spáni. Ferðin var farin með stuðningi úr Erasmus+ aðild Múlaþings.

Dagskrá ferðarinnar var fjölbreytt og fól meðal annars í sér heimsóknir í skóla, kynningu á skólakerfinu og kennaramenntun, auk menningarlegrar fræðslu.

Markmið ferðarinnar var að efla fagleg tengsl innan sveitarfélaganna og á milli skólastiga í hverjum þéttbýliskjarna, með sérstakri áherslu á að styrkja samfellu í námi barna frá leikskóla til grunnskóla.

Ferðin tókst afar vel, góð tengsl mynduðust innan hópsins og Valencia tók vel á móti þátttakendum í hlýju og góðu veðri.

Námsferð kennara til Valencia
Getum við bætt efni þessarar síðu?