Fara í efni

Neysluvatn á Borgarfirði orðið öruggt

27.08.2026 Fréttir Borgarfjörður

Neysluvatn á Borgarfirði er nú orðið öruggt samkvæmt sýnatöku HAUST en í frétt á heimasíðu HEF veitna kemur fram að sýni sem tekin voru á þriðjudaginn standast gæðakröfur.

Því er öllum kröfum um suðu á neysluvatni aflétt og fólki óhætt að neyta vatnsins sem áður.

Áfram verður unnið í vatnsveitu Borgarfjarðar á næstu vikum en vatnsgæði verða áfram trygg og gegnumlýsingartækið í notkun.

Frétt á heimasíðu HEF veitna: Gerlamengun í neysluvatni á Borgarfirði. | HEF veitur

Mynd: Vatnstankur í framkvæmdafasa á Borgarfirði, mynd tekin af vef HEF.
Mynd: Vatnstankur í framkvæmdafasa á Borgarfirði, mynd tekin af vef HEF.
Getum við bætt efni þessarar síðu?