Fara í efni

Ný afgreiðslukerfi í íþróttamiðstöðvum og sundlaugum Múlaþings

08.06.2023 Fréttir

Á næstu dögum verður skipt um afgreiðslukerfi í íþróttamiðstöðvum og sundlaugum í Múlaþingi. Á þessi breyting ekki að hafa mikil áhrif á reglulega notendur miðstöðvanna að öðru leyti en því að nú verða öll kort í veski í símanum.

Aðrir gestir sundlauganna í Múlaþingi geta einnig afgreitt sig sjálfir á rafrænan hátt, hvort sem er í stakt skipti eða fleiri. Til þess að kaupa kort í símann er farið á midi.mulathing.is, tegund korts sem á að kaupa er valið og greitt fyrir með greiðslukorti. Í rafrænt veski símans bætist þá við rafrænt aðgangskort sem notandi ber upp að skanna til þess að fá aðgang að sundlaug eða líkamsrækt. Kortin eru gefin út á tiltekinn einstakling og eiga einungis að vera notuð af þeim einstaklingi. Einnig er hægt að kaupa stakan miða, sem er eitthvað sem hentar til dæmis fyrir ferðafólk sem getur þá keypt sína miða fyrirfram og þurfa ekki að staldra við í afgreiðslunni eða bíða í röð.

Þau sem eiga nú þegar kort af einhverju tagi, annað hvort í líkamsrækt eða sund, munu geta farið inn á vefsíðuna midi.mulathing.is, skráð sig inn með rafrænum skilríkjum og sótt sitt kort í símann.

Við vonum að þessar breytingar valdi notendum okkar ekki vandræðum og er starfsfólk miðstöðvanna reiðubúið að gera sitt besta við að hjálpa fólki eins og hægt er.

Ný afgreiðslukerfi í íþróttamiðstöðvum og sundlaugum Múlaþings
Getum við bætt efni þessarar síðu?