Nýir opnunartímar hafa tekið gildi hjá Bókasafni Múlaþings í kjölfar þess að þrjú bókasöfn sveitarfélagsins voru sameinuð í eitt um áramótin.
- Á Djúpavogi verður opnunartíminn aukinn þannig að opið er mánudaga til fimmtudaga frá klukkan 15 til 18.
- Á Egilsstöðum verður áfram opið virka daga frá klukkan 13 til 18 en við bætist opnun á laugardögum frá klukkan 11 til 13.
- Á Seyðisfirði verður bókasafnið áfram opið virka daga frá klukkan 15 til 18.
Markmið breytinganna er að efla þjónustu við íbúa Múlaþings og skapa betra aðgengi að bókasafninu.
Verið öll velkomin á Bókasafn Múlaþings.