Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks undirrituðu í dag málefnasamning fyrir kjörtímabilið 2026–2030 og staðfestu myndun nýs meirihluta í sveitarstjórn Múlaþings. Samningurinn byggir á sameiginlegri sýn um öflugt samfélag, ábyrga fjármálastjórn, eflingu atvinnulífs og áframhaldandi uppbyggingu um allt sveitarfélagið.
Samkvæmt samningnum verður Jónína Brynjólfsdóttir áfram forseti sveitarstjórnar og Berglind Harpa Svavarsdóttir áfram formaður byggðarráðs. Jafnframt verður leitað eftir samningi við Dagmar Ýr Stefánsdóttur um að gegna áfram starfi sveitarstjóra á komandi kjörtímabili.
Meirihlutinn leggur áherslu á góða nærþjónustu fyrir íbúa á öllum aldri. Meðal áherslumála eru aukinn stuðningur við fjölskyldur og börn, hækkun frístundastyrks, áframhaldandi uppbygging íþróttamannvirkja, uppbygging göngu- og hjólastíga og efling þjónustu við eldra fólk. Þá verður áfram tryggt leikskólapláss frá 12 mánaða aldri og unnið að bættri samþættingu skóla-, íþrótta- og tómstundastarfs.
„Ég er afar stolt af því að þessi meirihluti byggi á skýrri framtíðarsýn um öflugt og samheldið Múlaþing þar sem þjónusta, tækifæri og lífsgæði íbúa eru í forgrunni. Öflugir innviðir eru lykillinn að því að fólk og fyrirtæki velji að búa og starfa í sveitarfélaginu og því er mikilvægt að halda áfram markvissri uppbyggingu skóla-, íþrótta- og tómstundaaðstöðu um allt sveitarfélagið. Með góðri samvinnu, trausti og metnaði getum við skapað enn betri aðstæður fyrir fjölskyldur, atvinnulíf og samfélagið allt til framtíðar.“ segir Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar.
Áhersla verður einnig lögð á ábyrga fjármálastjórn með markvissri skuldalækkun, áframhaldandi lækkun fasteignagjalda, skilvirkari stjórnsýslu og öflugu atvinnulífi. Sett verður fram atvinnustefna, framboð atvinnulóða aukið og stofnað hafnarráð til að styðja við þróun hafna og atvinnuuppbyggingu tengda þeim, auk þess sem áfram verður unnið að aukinni jarðhitaleit í sveitarfélaginu.
„Við ætlum okkur að auka samkeppnishæfni Múlaþings á öllum sviðum. Við viljum skapa góð skilyrði fyrir atvinnulíf, fjárfestingar og ný tækifæri. Stofnun hafnarráðs verður einnig mikilvægt skref til að efla hafnir sveitarfélagsins og nýta betur þau fjölmörgu tækifæri til verðmætasköpunar sem þar liggja,“ segir Berglind Harpa Svavarsdóttir, formaður byggðaráðs.
Í sameiginlegri hagsmunagæslu gagnvart ríkinu verða samgöngubætur, uppbygging Egilsstaðaflugvallar, öflug heilbrigðisþjónusta, bætt orkuöryggi og aukin þjónusta við landsbyggðina meðal forgangsmála næstu fjögurra ára.