Ráðinn hefur verið þjónustufulltrúi á skrifstofu Múlaþings í Geysi á Djúpavogi. Það er Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir en auk starfs þjónustufulltrúa á mannauðs- og þjónustusviði starfar Halldóra í Tryggvabúð á fjölskyldusviði Múlaþings.
Nýverið tók Greta Mjöll Samúelsdóttir við stöðu fulltrúa sveitarstjóra á Djúpavogi og eru því tveir nýir starfsmenn í Geysi.
Opnunartími skrifstofunnar verður alla jafna á þriðjudögum og föstudögum frá klukkan 8:30-12:00.
Utan þess tíma er íbúum bent á að hægt er að ná í starfsfólk Geysis í gegnum þjónustuver Múlaþings:
- í síma 4 700 700 alla daga frá 8:30-15:30 nema á föstudögum til 13:30
- með tölvupósti á mulathing@mulathing.is
- einnig má ávallt koma gögnum í póstkassann á bakhlið Geysis.
