Fara í efni

Nýr skólastjóri í Egilsstaðaskóla

29.04.2022 Fréttir Egilsstaðir

Starf skólastjóra Egilsstaðaskóla var auglýst 25. mars sl. Sex umsóknir bárust.

Kristín Guðlaug Magnúsdóttir hefur verið ráðin í starfið. Kristín hefur í rúm 30 ár starfað innan veggja grunnskóla, bæði sem kennari og stjórnandi. Frá árinu 2013 hefur Kristín verið aðstoðarskólastjóri Sunnulækjarskóla í Árborg en áður hafði hún verið deildarstjóri þar um fimm ára skeið.

Kristín er ekki ókunn Egilsstaðaskóla en hún starfaði þar sem umsjónarkennari og árgangastjóri á mið-og unglingastigi í nokkur ár. Kristín starfaði einnig í nokkur ár í Hallormstaðaskóla.

Kristín tekur við starfinu af Ruth Magnúsdóttur sem starfað hefur í skólanum frá 2001 og sem skólastjóri Egilsstaðaskóla frá árinu 2016 en hún lætur af störfum í sumar. Um leið og við bjóðum Kristínu velkomna til starfa þökkum við Ruth sérstaklega fyrir gott og farsælt samstarf og óskum henni velfarnaðar í nýjum verkefnum.

Egilsstaðaskóli.
Egilsstaðaskóli.
Getum við bætt efni þessarar síðu?