Fara í efni

Nýtt deiliskipulag, Kollsstaðasel, frístundabyggð

15.10.2026 Skipulag í auglýsingu Auglýsingar

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti þann 8. október 2026 að auglýsa tillögu fyrir nýtt deiliskipulag frístundabyggðar í landi Kollsstaðasels samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsáætlunin er unnin af Landslagi ehf. fyrir hönd landeigenda en viðfangsefni hennar er að afmarka 14 nýjar lóðir fyrir frístundahús ásamt því að skilgreina fyrirkomulag aðkomu.

Skipulagstillagan er aðgengileg í gegnum Skipulagsgátt

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum til og með 26. nóvember 2026. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is

Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.

Nýtt deiliskipulag, Kollsstaðasel, frístundabyggð
Getum við bætt efni þessarar síðu?