Fara í efni

Öll hvött til að taka þátt í að mála regnbogagötuna

21.04.2026 Fréttir Seyðisfjörður

Næstkomandi fimmtudag, 23. apríl, verður regnbogagatan á Seyðisfirði máluð í regnbogalitunum. 

Venju samkvæmt eru íbúar og gestir sveitarfélagsins hvattir til að taka þátt í því að koma götunni í sumarbúninginn og það á sjálfan sumardaginn fyrsta. 

Múlaþing mun sjá um að til sé nóg af penslum, rúllum og málningu svo þau sem vilja taka þátt þurfa eingöngu að mæta í viðeigandi fatnaði sem hæfir bæði veðri og verkinu sjálfu. Fólki er þó velkomið að taka méð sér sín eigin áhöld eigi það þau til.

Byrjað verður að mála klukkan 11:00.

Öll hvött til að taka þátt í að mála regnbogagötuna
Getum við bætt efni þessarar síðu?