Fara í efni

Opið fyrir spurningar á framboðsfundi í gegnum vefkerfi

06.05.2022 Fréttir

Opnað hefur verið fyrir spurningar í gegnum vefkerfið Menti fyrir sameiginlegan framboðsfund allra lista í Múlaþingi á morgun.

Senda má inn spurningar með að fara á www.menti.com og slá þar inn kóðann 7092 1534 eða smella á þessa slóð hér. Á síðunni sem þar kemur upp er smellt á „Open Q&A“ og sprettur þá upp gluggi sem hægt er að skrifa spurningu í.

Í sama glugga er hægt að sjá þær spurningar sem komnar eru og kjósa með þeim til að auka líkurnar á að þær komist á framfæri.

Minnt er á að spurningar eiga að vera skýrar og málefnalegar.

Fundurinn sjálfur hefst klukkan 20:00 laugardaginn 7. maí og verður í beinni útsendingu á Austurfrétt. Frétt með slóð á útsendinguna birtist nokkrum mínútum áður en hún hefst á heimasíðu Austurfréttar.

Opið fyrir spurningar á framboðsfundi í gegnum vefkerfi
Getum við bætt efni þessarar síðu?