Vinnuskólinn í Múlaþingi býður 13–17 ára ungmennum vinnu í sumar eða frá 10. júní til 13. ágúst. Vinnuskólinn er opinn öllum ungmennum fædd á árunum 2009–2013 og eiga lögheimili í sveitarfélaginu eða eiga foreldri/forsjáraðila sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
Í Vinnuskólanum fást nemendur við fjölbreytt verkefni. Flest snúa þau að garðyrkju og umhirðu í sveitarfélaginu en elstu árgangar kunna þó einnig að aðstoða við Sumarfrístund eða slátt. Í Vinnuskólanum er lögð áhersla á að kenna vönduð vinnubrögð og góða samvinnu í skemmtilegu vinnuumhverfi.
Starfsstöðvar vinnuskólans verða fjórar: á Borgarfirði, Djúpavogi, Egilsstöðum/Fellabæ og Seyðisfirði.
Unnið er fjóra daga vikunnar: mánudag til fimmtudags og frí á föstudögum. Vinnudögum kann þó að vera hliðrað fyrir elstu aldurshópana sem aðstoða við Sumarfrístund.
- 13 ára (árg. 2013) hafa kost á vinnu í 6 vikur, 3 klst. á dag, 4 daga vikunnar
- 14 ára (árg. 2012) hafa kost á vinnu í 6 vikur, 3 klst. á dag, 4 daga vikunnar
- 15 ára (árg. 2011) hafa kost á vinnu í 10 vikur, 6 klst. á dag, 4 daga vikunnar
- 16 ára (árg. 2010) hafa kost á vinnu í 10 vikur, 6 klst. á dag, 4 daga vikunnar
- 17 ára (árg. 2009) hafa kost á vinnu í 10 vikur, 6 klst. á dag, 4 daga vikunnar
Laun verða lögð inn á bankareikning sem skal vera skráður á kennitölu nemanda og verða útborgunardagar í mánaðarlok. Forsjáraðilum nemenda sem óska eftir vinnu í Vinnuskólanum er bent á að sækja um fyrir þeirra hönd.
14 ára nemendum (árg. 2012) býðst að sækja Sjávarútvegsskólann í eina vinnuviku og geta skráð sig í hann.
15–17 ára nemendur (árg. 2009–2011) geta óskað eftir að aðstoða við Sumarfrístund en hún stendur nemendum 1.–4. bekkjar til boða. Í Sumarfrístund er lögð áhersla á útivist, hreyfingu og gleði. Meðal þess sem er gert í Sumarfrístund eru leikir, gönguferðir, hjólaferðir, sundferðir og fleira.
Þá geta 17 ára (árg. 2009) óskað eftir því að hefja störf viku fyrr eða 3. júní í stað 10. júní.
Umsóknarfrestur er til og með 17. maí 2026. Ekki verður tekið á móti umsóknum eftir þann tíma.
Nánari upplýsingar um Vinnuskólann
Umsóknir í Vinnuskólann
Foreldrar/forsjáraðilar sækja um í Vinnuskóla Múlaþings í gegnum Mínar síður eða með því að smella á hlekkina hér að neðan.