Fara í efni

Opinn íbúafundur um stjórnunar- og verndaráætlun fyrir landslagsverndarsvæðið norðan Dyrfjalla

14.04.2023 Fréttir

Umhverfisstofnun, landeigendur og Múlaþing vinna að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir landslagsverndarsvæðið norðan Dyrfjalla og náttúruvættið Stórurð. Liður í þeirri vinnu verður íbúafundur í Hjaltalundi mánudaginn 17. apríl klukkan 16:00. Á fundinum verður farið yfir þá vinnu sem átti sér stað í aðdraganda friðlýsingar, farið yfir tilgang stjórnunar- og verndaráætlana ásamt því að skoða hvar vinna er stödd fyrir téða áætlun.

Í stefnumótunarhluta fundarins er áhersla á að setja fram hugmyndir að innviðauppbyggingu og þeim breytingum sem þörf er á að setja á áætlun. Fyrst verður farið á hugarflug þar sem fundargestir festa á blað allar raunhæfar hugmyndir sem fram koma. Næsta skref er að líta yfir hugmyndirnar og setja fram grófa forgangsröðun.

Dagskrá:

16:00-16:15 Kynning á friðlýsingu og stjórnunar og verndaráætlun.

16:15-16:30 Umræður.

16:30-16:45 Kynning á stefnumótunarvinnu.

16:45-17:00 Fyllt á bollann.

17:00-17:45 Hugmyndavinna - breytingar og uppbygging sem ráðast þarf í á næstu árum.

17:45-18:00 Næstu skref kynnt og lok fundar.

Fundurinn verður sendur út fyrir þá sem ekki komast í Hjaltalund, hlekkur á streymi: http://www.ust.is/kynningarfundur-í-Hjaltalundi-Múlaþingi

Dagskrá fundarins

Landslagsverndarsvæðið norðan Dyrfjalla og náttúruvættið Stórurð

Stjórnunar- og verndaráætlanir í vinnslu

Opinn íbúafundur um stjórnunar- og verndaráætlun fyrir landslagsverndarsvæðið norðan Dyrfjalla
Getum við bætt efni þessarar síðu?