Fara í efni

Opnað fyrir skráningar í sumarfrístund á morgun

18.05.2026 Fréttir

Sumarfrístund verður starfrækt frá 10. júní – 21. ágúst á Djúpavogi og á Egilsstöðum. Á Seyðisfirði byrjar frístundin þann 22. júní. Sumarfrístund er í boði fyrir börn fædd 2018 - 2021.

Frístundin er opin börnum fæddum 2018 – 2019 í allt sumar. Börn sem fædd eru 2017 geta verið í sumarfrístund fram að verslunarmannahelgi en eftir verslunarmannahelgi hafa börn fædd 2020 aðgang að sumarfrístund.

Opið verður fyrir skráningar í sumarfrístund frá 19. maí til 1. júní. Sótt er um í gegnum Völu appið eða í gegnum heimasíðu Völunnar. Að lágmarki fimm börn þurfa að vera skráð í frístund í hverri viku svo hún sé starfsrækt þá vikuna.

Sumarfrístund er opin frá 09:00 - 16:00 og greitt er fyrir viku í senn. Hádegismatur og nesti er innifalið í verðinu. Veittur verður systkinaafsláttur.

Nánari upplýsingar verður send foreldrum í gegnum Völuna.

Opnað fyrir skráningar í sumarfrístund á morgun
Getum við bætt efni þessarar síðu?