Fara í efni

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um leikskólavist

12.03.2026 Fréttir

Í Múlaþingi eru starfræktir sex leikskólar sem hafa allir sín einkenni og sérstöðu. Þeir eiga það þó allir sameiginlegt að innan þeirra fer fram metnaðarfullt og faglegt starf þar sem unnið er að því árið um kring að börnin vaxi og dafni við sem best skilyrði.

Hluti af starfinu er að skipuleggja það sem framundan er og með hækkandi sól þarf að fara að huga að næsta skólaári. Því hefur verið opnað fyrir umsóknir um leikskólapláss fyrir skólaárið 2026-2027 í gegnum Völu. Á sama stað er óskað eftir flutningum á milli leikskóla innan sveitarfélagsins. 

Mikilvægt er að umsóknir berist í síðasta lagi 31. mars næstkomandi

Sé óskað eftir frekari upplýsingum er hægt að hafa samband við leikskólafulltrúa sveitarfélagsins Mörtu Wium Hermannsdóttur í gegnum netfangið: marta.wium.hermannsdottir@mulathing.is eða í síma 4 700 700. 

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um leikskólavist
Getum við bætt efni þessarar síðu?