Fara í efni

Ormahreinsun hunda og katta – Takið dagana frá!

29.10.2026 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Ormahreinsun hunda og katta í Múlaþingi fer fram á næstu dögum og eru gæludýraeigendur hvattir til að mæta með dýr sín í hreinsun. Þjónustan er gjaldfrjáls þeim sem hafa skráð dýr sín hjá sveitarfélaginu og greiða af þeim leyfisgjöld til sveitarfélagsins.

Vakin er athygli á að örmerkjaskráning gæludýrs jafngildir ekki skráningu hjá sveitarfélaginu, heldur er sótt um leyfi í gegnum „Mínar síður“ hér á heimasíðunni.

Eigendur óskráðra hunda og katta eru hvattir til að skrá dýr sín hjá sveitarfélaginu. Allir kettir í þéttbýli og allir hundar eiga að vera skráðir hjá sveitarfélaginu. Vanræksla á því varðar sektum.

Þá er handsömunargjald dýra sem ekki eru skráð hjá sveitarfélaginu umtalsvert hærra en skráðra dýra samkvæmt gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Múlaþingi.

Eigendur hunda og katta geta sótt um 50% afslátt af leyfisgjöldum sveitarfélagsins sýni þeir fram á að hundar hafi sótt hlýðninámskeið og kettir hafi farið í ófrjósemisaðgerð.

Hér fyrir neðan má sjá tímasetningar ormahreinsana á hverjum stað. Henti tímasetningar ekki þarf að panta tíma hjá dýralækni, helst í nóvember, og senda staðfestingu á ormahreinsun á netfangið umhverfisfulltrui@mulathing.is.

Árleg ormahreinsun hunda og katta í Múlaþingi verður eftirfarandi:

Egilsstaðir

  • Hundar: þriðjudaginn 10. nóvember klukkan 16:30 – 18:00
  • Kettir: fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 16:30 – 18:00
  • Hvar: í Samfélagssmiðjunni (gamla Blómabæ), Miðvangi 31

Djúpivogur

  • Hundar: fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 15:00 – 16:00
  • Kettir: fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 16:00 – 16:30
  • Hvar: í þjónustumiðstöðinni, Mörk 14

Seyðisfjörður

  • Hundar: fimmtudaginn 5. nóvember klukkan 16:00 – 17:00
  • Kettir: fimmtudaginn 5. nóvember klukkan 17:00 – 18:00
  • Hvar: í þjónustumiðstöðinni, Ránargötu 2

Borgarfjörður

  • Hundar og kettir: miðvikudaginn 11. nóvember
  • Hvar: með óbreyttu sniði, haft verður samband við skráða gæludýraeigendur.
Ormahreinsun hunda og katta – Takið dagana frá!
Getum við bætt efni þessarar síðu?