Fara í efni

Óskað eftir efni í jólablað Bóndavörðunnar 2026

30.10.2026 Djúpivogur Auglýsingar

Stefnt er að útgáfu Bóndavörðunnar – jólablaði í upphafi aðventu.

Hér með er óskað eftir efni til birtingar hvort sem um ræðir auglýsingar, greinar, jólakveðjur eða myndir.

Allt er viðkemur aðventunni, jóladagskrá og upplýsingar til íbúa á Djúpavogi eiga heima í þessu blaði. Einnig er tilvalið að þarna komi fram opnunartímar verslana yfir hátíðirnar, breyttar áætlanir og annað til upplýsingar fyrir lesendur.

Efni skal berast ekki seinna en föstudaginn 13. nóvember í tölvupósti en einnig er alltaf velkomið að bjalla með tillögur að efni.

Öllum stendur til boða að verða áskrifandi að Bóndavörðunni en tvö blöð koma út á hverju ári og kostar áskriftin 3.000 krónur fyrir árið. Blaðinu er dreift í hvert hús gamla Djúpavogshrepps og til áskrifenda um allt land.

Ritstjóri blaðsins er Greta Mjöll Samúelsdóttir:

Verð auglýsinga:

  • Heilsíða - 20.000 krónur
  • Hálfsíða - 14.000 krónur
  • 1/3 síða – 8.000 krónur
  • ¼ síða – 5.000 krónur

Efni þarf að berast í síðasta lagi 13. nóvember.

Mynd: Bóndavarðan á Djúpavogi.
Mynd: Bóndavarðan á Djúpavogi.
Getum við bætt efni þessarar síðu?