Verkið felst í jarðvinnu vegna uppsteypu og grunnlagna, grunnlögnum, uppsteypu sökkla og jarðhæðar Ránargötu 1 Seyðisfirði. Í framhaldi af framkvæmdinni verður Hafnargata 44, Wathneshús flutt og sett á nýja jarðhæð. Verkið nefnist Ránargata 1 Seyðisfirði, jarðhæð.
Flatarmál jarðhæðar er um 204 m².
Verkið getur hafist strax eftir gerð samnings og skal að fullu lokið fyrir 15.09.2026.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt í tölvupósti frá og með þriðjudeginum 26. maí 2026 og verða ekki afhent á pappír. Óska skal eftir gögnum með tölvupósti til umsjónarmanns útboðsins á netfangið sveinsson@simnet.is.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Múlaþings Lyngási 12 Egilsstöðum þriðjudaginn 15.06.2026 fyrir klukkan 14.00, þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á útboðsvef opinberra útboða.