Múlaþing óskar eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga fyrir árið 2026. Viðurkenningarnar eru ætlaðar einstaklingum, félagasamtökum og fyrirtækjum sem skara fram úr við umhirðu lóða sinna og jarða eða við að bæta umhverfi sitt og annarra.
Viðurkenningunum er ætlað að vekja athygli á lóðum, lögbýlum og framlagi til umhverfismála sem þykja til fyrirmyndar í sveitarfélaginu og er skipt í fjóra flokka:
- Snyrtileg lóð við íbúðarhús í þéttbýli eða dreifbýli.
- Snyrtileg lóð við atvinnuhúsnæði eða fyrirtæki í þéttbýli eða dreifbýli.
- Snyrtileg jörð eða lögbýli
- Eftirtektarvert framlag eða frumkvæði einstaklings, félagasamtaka eða fyrirtækis til umhverfismála.
Í tilnefningu skal taka fram í hvaða flokki tilnefning er veitt og rökstyðja tilnefningu. Við mat á tilnefningum er m.a. litið til umhirðu og umgengni á lóð, jörð eða býli, frágangs og viðhalds bygginga, umhirðu gróðurs og ræktunar. Íbúar eru hvattir til þess að senda inn tilnefningar á netfangið umhverfisfulltrui@mulathing.is.
Frestur til að skila inn tilnefningum er til sunnudagsins 3. ágúst 2026.
Umhverfisviðurkenningar verða veittar í haust.