Ýmislegt verður um að vera í Múlaþingi um páskana og eru íbúar og gestir hvattir til að skoða upplýsingar um opnanir og dagskrá stofnana sveitarfélagsins. Séu opnanir ekki sérstaklega taldar upp hér að neðan má gera ráð fyrir að það sé hefðbundinn opnunartími og lokanir á rauðum dögum.
Þá eru þjónustufyrirtæki með ýmislegt skemmtilegt í boði í páskafríinu og ætti engum að leiðast. Heyrst hefur að það verði meðal annars hægt að kíkja á kvöld með indversku þema, skella sér í karaoke, taka þátt í pubquiz-i og margt fleira en nánari upplýsingar er að finna hjá viðkomandi aðilum.
Dagskrá og opnun skíðasvæðisins er sett fram með fyrirvara um veður. Best er að fylgjast með stöðunni í Stafdal á Facebooksíðu skíðasvæðisins.
Þá er hægt að kaupa skíðapassa á sérstöku páskaverði þar sem aðgangur að sundlaugunum í Múlaþingi og Fjarðabyggð fylgir með á þessum hlekk: Páskapassi.
Fréttin verður uppfærð eftir því sem upplýsingar berast.
Miðvikudagur 1. apríl
6:30 – 20:30 Opið í sundlauginni á Egilsstöðum
6:30 – 22:00 Opið í Hérðasþreki
7:00 – 11:00 Opið í Sundhöll Seyðisfjarðar
8:00 – 20:00 Opið í íþróttamiðstöðinni á Seyðisfirði
10:00 – 16:00 Opið í Stafdal
14:00 – 18:00 Opið á Bókasafni Múlaþings á Seyðisfirði (gildir 30. mars – 1. apríl)
16:00 – 20:00 Opið í Sundhöll Seyðisfjarðar
20:00 – 23:00 Kvöldopnun í Stafdal, partýstemming
Fimmtudagur 2. apríl – skírdagur
9:00 – 17:00 Opið í sundlauginni á Egilsstöðum og í Héraðsþreki
10:00 – 16:00 Opið í Stafdal
11:00 – 15:00 Opið í íþróttamiðstöðinni og sundlauginni á Djúpavogi
Föstudagur 3. apríl – föstudagurinn langi
9:00 – 17:00 Opið í sundlauginni á Egilsstöðum og í Hérðasþreki
10:00 – 16:00 Opið í Stafdal
Laugardagur 4. apríl
9:00 – 17:00 Opið í sundlauginni á Egilsstöðum og í Héraðsþreki
10:00 – 16:00 Opið í Stafdal – Páskaeggjamót í samhliðasvigi
11:00 – 13:00 Opið á Bókasafni Múlaþings á Egilsstöðum
11:00 – 14:00 Opið í íþróttamiðstöðinni á Seyðisfirði
11:00 – 15:00 Opið í Sundhöll Seyðisfjarðar, laugin upphituð
Sunnudagur 5. apríl – páskadagur
10:00 – 16: 00 Opið í Stafdal
Mánudagur 6. apríl – annar í páskum
9:00 – 17:00 Opið í sundlauginni á Egilsstöðum og í Héraðsþreki
10:00 – 16:00 Opið í Stafdal
Sveitarfélagið óskar íbúum, gestum og landsmönnum öllum gleðilegra páska!